Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef áður komið inn hugleiðingar mínar um frekari endurskoðun og get endurtekið aðalatriðin varðandi það. Ég þarf að taka mér örlítinn tíma í að ákveða með hverjum hætti framhaldið verður. Ég hef hug á að flýta ákvörðun um það. Ég horfi með svolitlum beyg til fortíðarinnar í þessu efni. Stórar endurskoðunarnefndir sem átt hafa að fjalla um almannatryggingalögin hafa ekki skilað þeim árangri sem ætlast er til. Spurningin er hvort taka eigi út tiltekin atriði og skila frekari endurskoðun á þeim eða fara í heildarendurskoðun.
Ég þarf að taka mér örlítinn tíma til að ræða þetta og taka ákvörðun um þetta efni. Ég hef huga á að flýta þeirri ákvörðun og hafa sem best samráð við þá sem um þessi mál fjalla. Þar koma fjölmargir aðilar til greina, m.a. samtök sem hv. þm. starfar fyrir, BSRB, sem er mjög stór aðili á sviði lífeyrismála, svo ég nefni nú dæmi. En ég þarf að fara yfir þetta alveg á næstunni.