Hafnaáætlun 2001--2004

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 18:08:01 (8377)

2001-05-19 18:08:01# 126. lþ. 129.18 fundur 327. mál: #A hafnaáætlun 2001--2004# þál. 28/126, Frsm. ÁJ
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[18:08]

Frsm. samgn. (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá samgn. um tillögu til þál. um hafnaáætlun árin 2001--2004.

Nefndin fékk á sinn fund fjölmarga aðila frá Siglingastofnun og öðrum stofnunum og fyrirtækjum.

Samkvæmt 24. gr. hafnalaga, nr. 23/1994, með síðari breytingum, skal Siglingastofnun Íslands gera sérstaka fjögurra ára áætlun um hafnarframkvæmdir á tveggja ára fresti. Við áætlunargerðina og forgangsröðun framkvæmda skal leggja til grundvallar mat á þörf fyrir framkvæmdir í einstökum höfnum, landshlutum og á landinu í heild og ber Siglingastofnun við áætlunargerðina að hafa samráð og samstarf við viðkomandi hafnarstjórn, Hafnasamband sveitarfélaga og hafnaráð. Áætlunin skal síðan lögð fyrir Alþingi til samþykktar í formi þingsályktunartillögu.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni er kostnaður við ríkisstyrkta hafnargerð áætlaður 6.652 millj. kr. á árunum 2001--2004. Hlutur sveitarfélaganna í þessum framkvæmdum er 2.169 millj. kr. en hlutur ríkissjóðs 4.483 millj. kr., en um 800 millj. kr. af þeirri upphæð er í raun aflað með hinu sérstaka vörugjaldi sem er álag á vörugjöld í höfnum.

Samkvæmt tillögunni koma til framkvæmda á árinu 2001 þau verk sem voru á hafnaáætlun árið 2000 en var frestað um eitt ár vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu. Af þeirri ástæðu eru framkvæmdir mestar árið 2001.

Við gerð þessarar hafnaáætlunar hefur verið fylgt sömu meginreglu við ákvörðun á greiðsluþátttöku ríkissjóðs og í fyrri áætlun. Ríkissjóður greiðir þannig 75% í hafnargörðum, dýpkunum og siglingarmerkjum. Ríkið greiðir enn fremur 60% í bryggjum og öðrum innri mannvirkjum hafna sem styrkhæf eru samkvæmt hafnalögum.

Nefndin vekur athygli á að nú er í gangi vinna við gerð samræmdrar samgönguáætlunar sem nær til hafna, flugvalla og vega og er fyrirhugað að leggja hana fyrir þingið haustið 2002. Jafnframt fer nú fram vinna við endurskoðun hafnalaga og mun hvort tveggja hafa áhrif á hafnaáætlanir í framtíðinni.

Nefndin vill geta þess að nú er unnið að gerð samnings við hafnarsjóð Seyðisfjarðar og Smyril Line um þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við nýja ferjuaðstöðu og önnur atriði vegna nýrrar ferjuhafnar.

Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Breytingarnar gera ráð fyrir nokkurri hækkun á framlagi ríkisins til hafnarframkvæmda. Stafar sú hækkun að mestu af því að tekin er inn í áætlunina fyrirhuguð stóriðjuhöfn á Reyðarfirði en einnig bætist við nýtt verkefni í Vestmannaeyjum, endurnýjun upptökumannvirkja. Að öðru leyti lúta breytingarnar fyrst og fremst að tilfærslum verkefna innan sveitarfélaga og eru á fyrrgreindu þingskjali.