Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ef hv. þm. mætti vera að því að hlýða á mál mitt, gleymdi ekki hv. þm. einu smáatriði í ræðu sinni? Ég spurði hana spurningar. Gleymdi hún ekki að svara henni?
Spurningin var þessi: Mun hv. þm., í ljósi fyrirvarans sem hún lýsti, greiða atkvæði gegn framlaginu til Eyja?