Frsm. efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um áhrif lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts sem flutt er af efh.- og viðskn.
Þáltill. þessi er flutt í tengslum við meðferð efh.- og viðskn. á frv. til laga um breyting á lögum um virðisaukaskatt en flutningsmenn þess eru Sighvatur Björgvinsson og nokkrir aðrir þingmenn Samfylkingarinnar.
Þáltill. hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að gangast fyrir sérstakri úttekt á áhrifum lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu. Í úttekt þessari verði m.a. lagt mat á hvort lækkun endurgreiðslunnar hafi aukið tekjur ríkissjóðs eins og vonast var til, hvort og/eða hversu mikið svört atvinnustarfsemi á þessu sviði hafi aukist og hvort ástæða sé til þess að hækka endurgreiðsluhlutfallið á nýjan leik og bæta aðgang að endurgreiðslunum.
Stefnt skal að því að niðurstöður verði lagðar fyrir Alþingi á næsta þingi.
Herra forseti. Þetta mál er flutt af efh.- og viðskn. og þarf því ekki að ganga til nefndar.