Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður)

Þriðjudaginn 03. október 2000, kl. 21:34:09 (20)

2000-10-03 21:34:09# 126. lþ. 2.1 fundur 9#B stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður)#, menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 126. lþ.

[21:34]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Ísland hefur verið kynnt víða á þessu aldamótaári. Fyrir vestan haf er þess minnst að þúsund ár eru liðin frá því að Vínland fannst, Reykjavík er ein af níu menningarborgum Evrópu og undir þeim merkjum hefur íslensk list verið flutt um álfuna og tvö stórvirki undir íslenskri forsjá, tónverkið Baldur eftir Jón Leifs og fjölþjóðlegi ungmennakórinn Raddir Evrópu hafa hlotið góðar viðtökur. Björk hefur enn á ný kallað á alheimsathygli og síðast en ekki síst fögnum við því innilega hve vel íþróttafólki okkar vegnaði á Ólympíuleikunum í Sydney og ber þar nafn Völu Flosadóttur hæst.

Við eigum ótrauð að standa við bakið á afreksfólki okkar í íþróttum og fylgja fram ályktun Alþingis um eflingu íþrótta, m.a. með því að styrkja Afreksmannasjóð ÍSÍ. Í framhaldi af leikunum í Sydney mun ég leggja á ráðin um það með íþróttaforustunni hvaða ný sameiginleg úrræði eru best til að standa enn frekar við bakið á okkar góða íþróttafólki.

Einnig er nauðsynlegt að skapa liststarfsemi betra umhverfi í samræmi við mikla grósku á því sviði. Þar ber hæst ákvörðun um tónlistarhús. Það er ekki lengur spurning um það hvort eða hvar það rís heldur hvenær. Þörfin fyrir húsið er ótvíræð. Geti Ísland ekki háð samkeppni með góðum mannvirkjum fyrir tónlist og ráðstefnur setur allt þjóðlífið niður. Í grg. með fjárlagafrv. kemur fram að framkvæmdir gætu hafist árið 2003.

Undir forustu menntmrn. og í samvinnu við Byggðastofnun hefur verið unnið að stefnumótun um menningarstarf á landsbyggðinni og af hálfu ríkisvaldsins á að semja um þær leiðir sem heimamenn kjósa á hverjum stað. Þannig hefur verið staðið að því að semja um leiðir til að efla símenntun en um land allt hafa verið stofnaðar símenntunar- eða fræðslumiðstöðvar sem sameina krafta skóla, sveitarfélaga, launþega og atvinnurekenda með nýjum og árangursríkum hætti. Undir merkjum þessara stofnana og miðstöðva hefur verið skapaður góður vettvangur til samvinnu við háskóla til rannsókna og kennslu.

Í menntamálum má aldrei leggja árar í bát heldur huga sífellt að því sem betur má fara um leið og lögð er rækt við það sem best hefur reynst. Með nýjum námskrám fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er í fyrsta sinn sköpuð eðlileg og æskileg samfella milli þessara skólastiga auk þess sem skólastarfi eru sett skýrari markmið en áður með reglulegri stígandi í skólagöngunni án þess að nemendur lendi í blindgötu. Næsta vor verða samræmd próf úr grunnskóla valfrjáls og inntökuskilyrði í framhaldsskóla breytast og þar með eykst sveigjanleikinn í skólakerfinu enn frekar.

Háværustu gagnrýnendur íslenska menntakerfisins kjósa annaðhvort af ásetningi eða þekkingarleysi að gera lítið úr hinu mikla umbótastarfi síðustu ára og hve margir vinna þar að nýsköpun. Við heyrðum það nú síðast í ræðu formanns Samfylkingarinnar sem hefur undanfarnar vikur lagt sig sérstaklega fram um það að spilla góðu samkomulagi menntmrn. og Grundfirðinga um tilraun til framhaldsskólastarfs þar í bæjarfélaginu.

Háskólastigið er að taka miklum breytingum með nýjum einkareknum skólum og vaxandi áherslu á meistara- og doktorsnám, einkum í Háskóla Íslands. Með Listaháskóla Íslands skapast ný vídd í mennta- og menningarlífinu. Háskólinn á Akureyri flytur um þessar mundir í nýtt húsnæði og hafist verður handa við að reisa nýbyggingu við Kennaraháskóla Ísalnds. Nauðsynlegt er að bregðast við óskum Háskóla Íslands um nýskipan á fjárveitingum til bygginga á hans vegum og er það málefni sem hlýtur að koma til kasta Alþingis.

Lánasjóður íslenskra námsmanna eflist og veitir meiri þjónustu en áður. Fjárveitingar til kennslu í háskólum byggjast nú á gagnkvæmum samningum sem hafa verið gerðir í góðri sátt. Fráleitt er að tala um niðurskurð í því sambandi þegar litið er til einstakra skóla og þó einkum Háskóla Íslands.

Unnið er að samningum um rannsóknafé til háskólanna og til að efla enn frekar opinbera sjóði á sviði vísinda. Ég hef lagt áherslu á að ríkið skilgreini hlutverk sitt þannig að það sinni grunnrannsóknum og menntun ungra vísindamanna. Náist samningar um þessi mál á næstu vikum verða þeir kynntir Alþingi vegna ákvarðana um fjárlög en undanfarin fimm ár hafa opinber útgjöld til rannsókna og þróunarstarfa aukist um 38%.

Við Íslendingar stöndum vel að vígi í upplýsingatækni, ekki síst þegar litið er til menntakerfisins. Nú á þessum vetri er enn ráðist í nýsköpun með tilraunverkefnum vegna fartölvuvæðingar framhaldsskólanna. Í fjárlagafrv. fyrir árið 2001 er gert ráð fyrir fjárveitingu til verkefna á sviði tungutækni, þ.e. til þess að tryggja stöðu íslenskunnar í heimi upplýsingatækninnar. Á næstunni verður kynnt val á nýju sameiginlegu bókasafnskerfi fyrir öll bókasöfn landsins en það stórbætir aðstöðu allra landsmanna til að nálgast upplýsingar.

Herra forseti. Verkefni á sviði íþrótta, menningar og mennta, rannsókna og vísinda eru óþrjótandi og heillandi vegna þess að þau lúta öll að því að búa betur í haginn fyrir æskuna og þar með framtíðina. Verði ekki hvikað frá þeim markmiðum sem þegar hafa verið sett á þessum sviðum er íslenska þjóðin á réttri braut við upphaf nýrrar aldar.