Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):
Herra forseti. Spurt er um hvort beita eigi heimildum í 9. gr. laga um stjórn fiskveiða. Þeirri grein er beitt á þessu fiskveiðiári og var beitt á því síðasta varðandi innfjarðarrækju. Því er beitt vegna þess að þar er um að ræða kvótabundna tegund en beiting greinarinnar er skilyrt því að um sé að ræða kvótabundnar tegundir.
Hvað varðar hrognkelsaveiðar, þá eru hrognkelsaveiðar ekki kvótabundnar og þar af leiðandi ekki heimild í lögunum til að beita þessari grein.
Skýrsla er í vinnslu um stöðu grásleppuveiðanna sem ég bað um að yrði unnin fyrr eða reyndar í lok síðasta árs og sagði frá á aðalfundi Landssambands smábátaveiðimanna. Ég hef ekki fengið endanlega skýrslu en fengið áfangaálit og þær niðurstöður sem þar koma fram hafa ekki verið þess eðlis að hægt væri að beita einhverjum sérstökum aðgerðum til að styrkja þessa atvinnugrein.
Ég hef ekki neinar nýjar upplýsingar um stöðu hrognkelsastofnsins en síðustu upplýsingar sem ég hafði voru að hann væri ekki talinn vera á niðurleið eða í sérstakri hættu og ekki hægt að tengja stöðu greinarinnar við stöðu stofnsins heldur væri aðallega um markaðsaðstæður að ræða. Jafnframt hefur verið erfitt að meta veiðarnar vegna þess að færri hafa farið til veiða á tveimur undanförnum árum miðað við árin þar á undan vegna þess að útgerðarmennirnir hafa verið að beita ákveðnum markaðsaðgerðum til að þrýsta verðinu upp með því að veiða minna og þar með setja minna inn á markaðinn.