Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Fyrst örstutt um orðanotkun. Ef hæstv. ráðherra hefur af einhverjum undarlegum ástæðum skilið orðalag tillögunnar svo að þarna væri t.d. verið að tala um Sameinuðu þjóðirnar, Norðurlandaráð, stofnunina um öryggi og samvinnu í Evrópu, Evrópuráðið eða annað slíkt þá er einfalt að eyða þeim misskilningi. Hér eru notuð orð sem eru þýðingar á orðum yfir fyrirbæri sem ég hélt að væru tiltölulega óumdeildar. Hér er talað um ríkjasambönd með vísan til þess að nafni Evrópubandalagsins var breytt í Evrópusambandið. Af hverju? Af því að þar kom inn hið alþjóðlega viðurkennda hugtak ,,union``. Hér er vitnað til hluta sem hafa ákveðna þjóðréttarlega stöðu og eru viðurkennd fyrirbæri, ,,union`` og ,,federation``. Ég bið þá um hjálp við þýðingar ef hæstv. utanrrh. hefur aðra máltilfinningu í þessum efnum en við.
En til þess að það sé alveg á hreinu þá er þessi tillaga ekki um að við segjum okkur úr Sameinuðu þjóðunum. Hún er ekki um að við segjum okkur Norðurlandaráði, hún er ekki um að við segjum okkur úr Evrópuráðinu, ekki um að við hættum þátttöku í starfi stofnunarinnar um öryggi og samvinnu í Evrópu. Þar viljum við einmitt að þátttaka Íslands sé öflug og myndug vegna þess að það er það form á samstarfi ríkja sem við höllumst að. Í þeim skilningi erum við að sjálfsögðu ekki lakari alþjóðasinnar en hverjir aðrir. Við teljum hins vegar ekki þjóna hagsmunum Íslands, vegna sérstöðu landsins, smæðar og af ýmsum ástæðum, að ganga inn í ríkjasamband, væntanlegt stórríki Evrópu sem þarna er að verða til.
Að öðru leyti, herra forseti, verð ég að segja að mér finnst það dapurlegt að það gengur æ verr orðið, a.m.k. í mínu tilviki, að eiga málefnaleg skoðanaskipti við utanrrh. Íslands. Hæstv. utanrrh. byrjar flestar ræður á því að æsa sig upp og gera mönnum upp skoðanir, bera á mig og okkur tillögumenn einangrunarhyggju og lesa úr málflutningi okkar og tillögum allt annað en þar stendur, að við séum á móti öllu alþjóðasamstarfi eða annað slíkt. Síðan notar hæstv. ráðherra restina af ræðutímanum í að skammast út í þessi sjónarmið sem hann hefur áður gert mönnum upp. Þetta er ekki grundvöllur uppbyggilegra skoðanaskipta verð ég að segja, herra forseti.