Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Ég verð að segja að mér finnst þetta stórbrotnar ræður sem hér hafa verið fluttar af hálfu hæstv. utanrrh. og síðan af hv. þm. Sighvati Björgvinssyni. Að fara út í orðhengilshátt og útúrsnúning á tillögunni og taka ekkert mark á því sem augljóslega liggur alveg nægjanlega skýrt fyrir til að sæmilega greindir menn eigi að geta skilið er eiginlega dapurlegt. Hvers vegna velja menn þessa aðferð hér, tveir heiðursmenn, annar úr Framsfl. og hinn úr Samfylkingunni? Er það hugsanlega vegna þess að þeir eigi bágt með að ræða efni málsins sjálfs og tjá sig um hvort þeir vilja áfram byggja á sjálfstæðri fullveldisstöðu Íslands, ganga ekki í Evrópusambandið eða gerast 51. ríkið í Bandaríkjunum? Það er það sem þetta snýst um og það er alveg skýrt af þessum texta. Ég hafna því að orðalag sé á nokkurn hátt þannig að það eigi að þurfa að vera mönnum til trafala.
Þetta snýst sem sagt um það að við teljum að Ísland eigi ekki að fórna sjálfstæði sínu inn í efnahagsbandalög sem hafa svo dæmi sé tekið sameiginlegan gjaldmiðil, tolla og skattastefnu eða að við eigum ekki að fórna fullveldi okkar og sjálfstæði með því að ganga inn í samtök sambandsríkja eins og Bandaríkja Norður-Ameríku. Það þarf mikið hugmyndaflug til að lesa út úr tillögunni að orðalag af þessu tagi mundi hrófla við þátttöku okkar í samstarfi fullvalda ríkja í alheimsstofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum eða svæðasamstarfi án nokkurs yfirþjóðlegs valds eins og Norðurlandaráð er og hv. þm. ætti að vera manna best kunnugt. Það er algjörlega óhugsandi að lesa út úr þessum texta neitt í þá áttina.
Sögulega er það rangt, mjög rangt hjá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni að ágreiningur hafi verið um öll skref sem Íslendingar hafa tekið í alþjóðamálum á síðustu áratugum. Það var enginn ágreiningur um aðild að Sameinuðu þjóðunum. Það var enginn ágreiningur um aðild að Norðurlandaráði. Það var enginn ágreiningur um aðild að Evrópuráðinu. (Forseti hringir.) Það var enginn ágreiningur um aðild að stofnuninni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Það var enginn ágreiningur um aðild að Vestnorræna (Forseti hringir.) þingmannaráðinu og þannig mætti áfram telja. Það er því ekki rétt söguskoðun að halda slíkum hlutum fram.