Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það bar til í umræðum í gær um fyrirspurn frá hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur um flutning verkefna á vegum hins opinbera út á land að hv. þm. Þuríður Backman tók undir gagnrýni sem hafði komið fram af hálfu margra þingmanna um að lítið væri að gerast í þessum efnum.
Þá brá svo við að hæstv. ráðherra byggðamála notaði hluta af seinna svari sínu í lok umræðunnar til þess að afflytja mjög viðhorf þess sem hér stendur og Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs til þessa málefnis, þ.e. flutning ríkisstofnana út á land. Hæstv. ráðherra hafði um það þessi orð, með leyfi forseta:
,,Um það sem hv. þm. Þuríður Backman sagði hér um að gott væri ef hægt væri að halda áfram að flytja ríkisstofnanir út á land þá veit ég ekki betur en að hennar flokkur sé andvígur því. Ég hef heyrt formann vinstri grænna segja það í viðtali í fjölmiðlum að hann telji ekki að það eigi að flytja ríkisstofnanir út á land.``
Herra forseti. Fyrir þessari fullyrðingu hæstv. ráðherra er engin stoð. Ég hef látið leita uppi fréttaviðtalið sem þarna er væntanlega vitnað til og það eina sem mér er kunnugt um að við mig hafi verið tekið að undanförnu um þessi mál. Það var í morgunfréttum Ríkisútvarpsins í september og þar endursegir fréttamaðurinn fyrri hluta af viðtalinu:
,,Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður vinstri grænna, segir að ríkisstjórnin sé að vinna byggðastefnunni mikið ógagn með því að böðlast með stofnanir út á land sem hafi örfáa starfsmenn innan sinna vébanda. Almenningsálitið sé að snúast gegn byggðastefnu.
Steingrímur segist hlynntur því að dreifa verkefnum og störfum yfir landið en menn séu að leggja of mikla áherslu á flutning fámennra stofnana eða yfirstjórna þeirra.``
Þarna er ekki sagt að við séum andvíg því að flytja stofnanir út á land ef þannig er að því staðið að það geti gerst skaplega. Þaðan af síður kom nokkuð fram í því sem haft var eftir mér beint í nefndu viðtali í þessa átt enda varla von því að það er ekki afstaða mín að það eigi aldrei að grípa til þessara ráða. Hér var verið að setja fram gagnrýni á vinnubrögð, herra forseti, en ekki markmið.