Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Sá skepnuskapur sem fram kemur í skýrslunni að mati hv. þm. og felst í því að þar er lagt til að krókabátar verði allir á aflamarki er samhljóða þeirri tillögu sem samtök smábátaeigenda komust að niðurstöðu um um áramótin 1998--99. Þetta getur hv. þm. kynnt sér vegna þess að þær staðreyndir lágu fyrir á þeim tíma. Það var gert undir þeim formerkjum að smábátamenn óskuðu eftir vinnufriði. Þeir voru orðnir þreyttir á endalausum breytingum á kerfinu og við getum svo sem skilið það. Bara á síðasta ári minnir mig að gerðar hafi verið tvær eða þrjár breytingar á þeirra kerfi. Þeir vilja atvinnuöryggi eins og aðrir og það er mjög mikilvægt. Ég veit að hv. þm. skilur það enda gekk stór hluti af ræðu hans út á mikilvægi þess að menn hefðu ákveðið atvinnuöryggi.
En bara ein spurning, einmitt vegna þeirrar áherslu sem hv. þm. leggur á það sem hann kallar kvótabraskskerfi og telur undirrót allra þeirra breytinga sem orðið hafa á búsetu á Vestfjörðum, ef ég hef skilið mál hans rétt. Mig langar til að vita hvort hann sé á móti sölu fiskiskipa. Er hann á þeirri skoðun að enda þótt framsal yrði algjörlega bannað, hvort sem væri leiga eða sala aflahlutdeilda eða aflamarks, þá mundi hann samt sem áður vilja leyfa sölu fiskiskipa? Eða vill hann líka festa þau við viðkomandi sveitarfélög?