Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Það er sjálfsagt ekkert svo slæmt að vera sammála vinstri grænum --- svona a.m.k. stöku sinnum. En ég held að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hafi ekki alveg skilið það sem ég var að segja. Ég var einmitt að segja honum það að ég hafi verið að skoða þessi mál á undanförnum vikum og að ég hafi komist að þeirri niðurstöðu að á það þurfi að reyna hvort eitthvað hindri íslenskan sjávarútveg í því að fjárfesta í þeim fyrirtækjum og þeirri starfsemi erlendis sem hann hefur hug á í þeirri löggjöf sem er í dag. Ég hef því með engu móti lokað á það að við skoðum þetta í framtíðinni. En ég held við þurfum að gera okkur betur grein fyrir því en fram hefur komið í umræðunni til þessa, hvar og hvort eitthvað hamli í þessum efnum.
Það er hins vegar líka athyglisvert sem kom fram í umræðunni hér af hálfu hæstv. utanrrh., þ.e. að staðan sé hugsanlega sú að ef við viljum gera almennt breytingar í þessum efnum þá þurfi til að koma aðrar ráðstafanir til þess að tryggja yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindinni. Og það þýðir þá auðvitað að þetta er efni sem er ekkert augljóst. Ef atvinnugreinin stæði frammi fyrir því að nauðsyn væri á því að setja aðrar takmarkanir í staðinn fyrir þær sem þá væru felldar úr gildi þá ætla ég ekki hér og nú að kveða upp úr með það hver niðurstaðan yrði í því efni.
En hv. þm. Sighvatur Björgvinsson skildi ekki nákvæmlega það sem ég var að segja, að þetta mál hefur verið í skoðun og ég tel að enn frekar þurfi að reyna á hvort einhverjar hömlur séu fólgnar í þeim lögum sem við búum nú við.