Flm. (Svanfríður Jónasdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Það er kannski rétt að rifja það upp fyrir hv. þm. að þeir þingmenn sem sátu í auðlindanefnd og voru þá ýmist í þingflokki jafnaðarmanna eða Alþb. stóðu hvorki að flutningi né samþykkt þeirrar löggjafar sem hér var frágengin á árinu 1998 um eignarhald á auðlindum í jörðu. Það gerði hins vegar flokkur hv. þm. Mér finnst, herra forseti, að hv. þm. skuldi hér rétt eins skýringar á viðhorfum flokks síns í þessum efnum eins og við þingmenn Samfylkingarinnar. Það hefur legið fyrir hver afstaða okkar hefur verið og á hv. Alþingi höfum við verið henni samkvæm.
Hv. þm. talar hins vegar algerlega í allt aðra átt en sá flokkur sem hann er þingmaður fyrir hefur starfað og unnið og mér finnst, herra forseti, að það hljóti að kalla á skýringar miklu fremur en það hvaða afstöðu fulltrúar Samfylkingarinnar höfðu í auðlindanefnd þegar þessi mál komu til umfjöllunar einfaldlega vegna þess að ég held að ef hv. þm. les tillöguna eins og hún var afgreidd frá Alþingi, þá sjái hann rétt eins og ég að nefndinni var falið að fjalla um þær auðlindir sem væru í þjóðareign eða kynnu að verða og eins og ég sagði áðan, nefndin leit ekki á það sem sitt hlutverk að fara inn á svið þar sem Alþingi var nýbúið að afgreiða með miklum pólitískum meiri hluta og rífa það upp, enda var ljóslega ekki meirihlutavilji fyrir því í þinginu sem endurspeglaðist aftur í nefndinni. Þetta hlýtur hv. þm. að vita sem aðili að meiri hluta á hv. Alþingi.