Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað í dag vil ég láta þess sérstaklega getið að óskað var eftir því af hálfu 1. flm. að ég sem dómsmrh. yrði viðstödd umræðuna og tæki þátt í henni og svaraði fyrirspurnum. Ég varð við því. Ég hef alltaf sagt að ég telji mikilvægast í málinu að hagsmunir barnanna verði hafðir að leiðarljósi. Jafnframt vil ég ítreka að ég tel mjög mikilvægt að Barnahúsið haldi áfram starfsemi sinni. En ég tel að efni frv. komi því máli ekki beint við. Hins vegar er sjálfsagt og eðlilegt að hv. allshn. þingsins fjalli um þetta mál.
Varðandi það sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir spurði um þennan aldur, 14 ár, þá vil ég ítreka það sem ég sagði í fyrri ræðum mínum, að það er einmitt sú tillaga sem kom fram frá dómstólaráði að viðmiðunaraldur væri 14 ár og jafnvel eldri börn. Það er alveg ljóst að ákveðnar tillögur hafa komið fram til sátta í þessu máli. Ég vil bæði trúa því og treysta að allir geti og hafi áhuga á að ná fram sáttum sem leiði til sem farsælastrar niðurstöðu fyrir börn í þessum erfiðu og viðkvæmu málum.