Uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs

Þriðjudaginn 17. október 2000, kl. 17:52:24 (685)

2000-10-17 17:52:24# 126. lþ. 11.11 fundur 12. mál: #A uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs# þál., JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 126. lþ.

[17:52]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður var fyrst og fremst að taka undir þau sjónarmið sem ég setti fram og ég þakka fyrir það. Það eflir mig í því að það sé kannski rétt þetta tvennt sem ég nefndi, að einhver ákveðin rannsókn fari fram á orsökum og afleiðingum þess sem við erum að fjalla um og síðan fari nefnd í málið. Fróðlegt verður að hlýða á það hér á eftir hvort flm. þessarar tillögu geti tekið undir þau sjónarmið sem komu fram hjá mér og síðasta ræðumanni í málinu.