Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að mér leiðist dálítið hve menn taka mikið þannig til orða að öll fiskveiðistjórnarkerfi bjóði upp á brottkast. Við erum að ræða um fiskveiðistjórnarkerfi sem er núna í gildi og meiri hluti á Alþingi virðist ekki ætla að breyta út frá því kerfi. Þess vegna tel ég fulla ástæðu til að menn tali bara út frá því kerfi og þeim hvötum sem eru fólgnir í því kerfi til að kasta fiski í sjóinn. Það liggur fyrir hverjir þeir eru, menn hafa farið yfir það hér. Menn fá m.a. hærra verð fyrir hluta af aflanum og henda þess vegna þeim ódýrari í sjóinn. Menn hafa ekki kvóta og kvótinn er dýr í leigu og menn henda fiski í sjóinn. Þetta eru hvatarnir sem fylgja þessu kerfi og um það eiga menn að tala en ekki eitthvað óskilgreint, annaðhvort aftur í tímanum eða í einhverjum fiskveiðistjórnarkerfum sem menn ætla sér alls ekkert að taka upp. Mér finnst menn vera að drepa málum á dreif með slíkum málatilbúnaði og mér finnst að menn ættu að halda sig meira við það sem er eðli málsins, þ.e. tala um vandamálin í kerfinu sem við höfum hér.