Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ekki er endilega víst að gamla landsprófið hafi verið slæmt og ég held að samræmdu prófin hafi hrært ansi mikið upp í mörgum skólum úti á landsbyggðinni. Sumir hafa tekið sér tak og hafa bætt kennsluna allmyndarlega. Samræmdu prófin eru því þegar farin að virka þó að ekki séu nema örfá ár síðan þau voru tekin upp. Þau veita bæði kennurum aðhald, foreldrarnir gera kröfur til sveitarfélagsins hvað varðar þessa grunnskóla og sveitarfélagið gerir kröfu til skólans. Þetta er því farið að virka fyrir utan að nemendur hafa líka samanburð sín á milli. Nemandi á Súgandafirði getur borið einkunn sína saman við einkunn vinar síns eða frænda í Reykjavík eða á Akureyri og það er líka samanburður sem ég held að sé mjög mikilvægur og samkeppni. Ég held að mjög mikilvægt sé einmitt að samræmdu prófin leiði fram samanburð milli kennara, milli skóla, milli sveitarfélaga og milli nemenda.