Kynbundinn munur í upplýsingatækni

Fimmtudaginn 19. október 2000, kl. 18:19:04 (872)

2000-10-19 18:19:04# 126. lþ. 14.16 fundur 123. mál: #A kynbundinn munur í upplýsingatækni# þál., SÓ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 126. lþ.

[18:19]

Stefanía Óskarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að lenda í orðakasti við hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur um önnur mál en þau sem eru hér til umræðu, þ.e. að fela menntmrh. að skipa nefnd sem á að hvetja konur til virkari þátttöku í upplýsingatækninni.

Ég spyr: Af hverju að skipa nefnd í þessum málum þegar mikil vinna er í gangi og aðrar nefndir eru að störfum?