Löggæsla á Akranesi og í Borgarnesi

Mánudaginn 30. október 2000, kl. 15:19:51 (904)

2000-10-30 15:19:51# 126. lþ. 15.1 fundur 62#B löggæsla á Akranesi og í Borgarnesi# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 126. lþ.

[15:19]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Það er ósköp auðvelt að setja sig á þann stall að gagnrýna. En ég ítreka það sem ég hef sagt áður. Það eru engin vandamál á þessu svæði. Það koma tímabundnar sveiflur þar sem þarf að skipuleggja störf lögreglunnar betur og það verður gert. Þessi mál eru í skoðun. Hins vegar langar mig til að varpa fram þeirri spurningu til hv. þm. hvort hann hafi orðið var við mikinn áhuga hjá hv. þm. almennt séð á að fækka sýslumannsembættum.