Fráveitumál sveitarfélaga

Mánudaginn 30. október 2000, kl. 15:31:45 (913)

2000-10-30 15:31:45# 126. lþ. 15.1 fundur 64#B fráveitumál sveitarfélaga# (óundirbúin fsp.), umhvrh.
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 126. lþ.

[15:31]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):

Virðulegur forseti. Ég tel að við eigum að skoða þessi mál í umhvrn. miðað við þær upplýsingar sem hér komu fram og líka þær upplýsingar sem komu fram á fundinum í Mosfellsbæ sem ég nefndi áðan. Ég tel algjörlega ótímabært að útlista það hér hvort fé verður veitt í frekari rannsóknir eða ekki. Ég tel að málið sé ekki komið á það stig. Við þurfum að skoða það áður en við tökum einhverjar slíkar ákvarðanir.