Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Hvers konar samtrygging er á ferðinni millum stjórnvalda og tryggingafélaganna? Það liggur fyrir að tryggingafélögin hafa gerst uppvís að því að hafa hækkað iðgjöld sín langt fram yfir það sem sæmilegt má telja og auðvitað er það skylda Alþingis að fara djúpt ofan í það mál. Þess freistuðu fulltrúar stjórnarandstöðunnar í efh.- og viðskn. og fengu ekki skýr svör. Þá eru það einfaldlega réttindi Alþingis að fara þá leið að biðja um skýrslu til þess að krefjast skýrra svara um þetta mál. Það er ekkert annað en hneisa þegar hæstv. viðskrh. kemur hingað og lýsir því í reynd yfir að verði skýrslubeiðnin samþykkt hyggist hún ekki verða við þessu. Hvers konar vinnubrögð eru menn að taka upp á hinu háa Alþingi?