Rannsókn á efnahagslegum völdum kvenna

Miðvikudaginn 01. nóvember 2000, kl. 14:32:08 (1078)

2000-11-01 14:32:08# 126. lþ. 18.1 fundur 104. mál: #A rannsókn á efnahagslegum völdum kvenna# fsp. (til munnl.) frá forsrh., forsrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 126. lþ.

[14:32]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það var Alþingi sem gaf ríkisstjórninni fyrirmæli um það að láta framkvæma þessa könnun. Vegna þess að nefnt var að nauðsynlegt væri að fylgja síðan niðurstöðum hennar eftir lít ég svo til að ríkisstjórninni beri, þegar könnun þessi er fullfrágengin, að afhenda þinginu hana fullgerða og það sé síðan þingsins að ákveða næstu skref á grundvelli þeirrar könnunar.