Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Á vegum samgrn. hefur ekki verið lagt sérstakt mat á framlag kvenna í ferðaþjónustu. Þjóðhagsstofnun hefur ekki fyrirliggjandi kynjaskiptingu í tölum stofnunarinnar um ársverk í ferðaþjónustu en í árslok 1999 voru þau 5.300 talsins.
Ekki liggja fyrir neinar starfs- eða tekjukannanir innan ferðaþjónustunnar og því erfitt að segja um starfskjör og laun kvenna í greininni miðað við karla. Samkvæmt upplýsingum frá helstu samtökum í ferðaþjónustu, stéttarfélögum og fyrirtækjum sést hins vegar að fjöldi kvenna í ferðaþjónustu er umtalsverður. Þannig eru t.d. félagsmenn í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur sem starfa við ferðaþjónustu 1.331 kona á móti 509 körlum og hjá Flugleiðum starfa 1.050 konur en 750 karlar. Af 120 bæjum innan ferðaþjónustu bænda eru 113 reknir af hjónum og hjá 39 fyrirtækjum innan samtaka ferðaþjónustunnar eru konur í forsvari.
Í samgrn. hafa ekki komið fram neinar vísbendingar um að konur þurfi sérstakar stuðningsaðgerðir til að hasla sér völl í ferðaþjónustu, enda eru þær áberandi víðast hvar á vettvangi ferðaþjónustunnar eins og áðurgreindar tölur gefa til kynna.