Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Það er ekki miklu að bæta við þetta brýna og góða mál sem hér hefur verið flutt. En það að ekkert hefur gerst frá því bréf gengu á milli í byrjun maí á þessu ári til dagsins í dag sýnir einmitt hvað þetta er stundum þungt í vöfum og að búið sé að setja reglugerð um akstur dráttarvéla en ekki flutningabíla og olíubíla er náttúrlega mjög furðulegt.
Þess vegna segi ég alveg hiklaust að þetta mál ætti í rauninni að fá nokkurs konar flýtimeðferð í gegnum þingið til þess að settar verði reglur sem allra fyrst til að banna umrædda flutninga. Ég ætla ekki að hugsa þá hugsun til enda hvernig okkur mundi líða ef eitthvert slys henti í göngunum þann tíma sem við erum að ræða þetta sjálfsagða mál hér á hinu háa Alþingi. Slysið í Sviss, sem hv. þm. Ásta Möller minntist á, ætti að vekja okkur til umhugsunar um þetta atriði.
Ég vil aðeins í lokin geta þess, herra forseti, að þeir sem keyra oft í gegnum þessi göng verða náttúrlega varir við mjög misjafnan aksturshraða. Ég hef heyrt að á tiltekinni bifreiðastöð hangi uppi svokölluð ökuskífa sem sýni að þar hafi flutningabíll verið keyrður í gegn á allmiklum hraða, ég ætla ekki nefna tölur í þeim efnum, þar sem nánast var komið að því að bremsuborðar bráðnuðu í sundur. Þetta sýnir hvað málið er í raun alvarlegt. Að vísu eru einhverjar lokanir núna í Hvalfjarðargöngum á meðan verið er að setja upp búnað vafalaust til að mæla hraða --- maður vonar náttúrlega að lenda ekki sjálfur í því strax á fyrstu dögum --- en það ætti þá alla vega að verða til þess að vara menn við að keyra of hratt þarna í gegn. Það er náttúrlega langbrýnast að taka fyrir þessa flutninga og lækka aksturshraða stórra flutningabíla, en akstur þeirra hefur stóraukist um þjóðvegakerfi landsins.