Loftferðir

Fimmtudaginn 02. nóvember 2000, kl. 14:33:07 (1244)

2000-11-02 14:33:07# 126. lþ. 19.4 fundur 56. mál: #A loftferðir# (leiðarflugsgjöld) frv., GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 126. lþ.

[14:33]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara efnislega í frv. sjálft heldur í orð hv. þm. sem talaði hér áðan, og fór rangt með. Hann las upp þá sem sátu í flugráði og gat þess að þeir hefðu fjallað um málið. Hv. þm. nefndi það jafnframt að Árni Johnsen hefði ekki setið þennan fund flugráðs en gat mín þar. En ekki þess sem meginmáli skiptir fyrir mig sem samgöngunefndarmann, þ.e. að ég sat hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Það kom ekki fram í máli hv. frummælanda. Mér þykir rétt að leiðrétta það því að eðlilegt er að menn fari með málið eins og það er satt og rétt en hagræði ekki sannleikanum.