Loftferðir

Fimmtudaginn 02. nóvember 2000, kl. 14:34:50 (1246)

2000-11-02 14:34:50# 126. lþ. 19.4 fundur 56. mál: #A loftferðir# (leiðarflugsgjöld) frv., GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 126. lþ.

[14:34]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að ég taki þetta fram vegna þess að ég tel rétt að málum sé ekki hallað úr þessum stóli. Ástæða þess að ég sat hjá er sú að ég sit í samgn. þar sem átti eftir að fjalla um málið. Þess vegna sat ég hjá. Það er ekki eðlilegt að leika tveim skjöldum þó að í nefndastörfum sé unnið úti í bæ, þá verða menn í upphafi að skoða endinn. Þess vegna sat ég hjá en greiddi jú atkvæði, eins og hér kom fram hjá hv. þm., með þessu máli.