Loftferðir

Fimmtudaginn 02. nóvember 2000, kl. 15:24:39 (1262)

2000-11-02 15:24:39# 126. lþ. 19.4 fundur 56. mál: #A loftferðir# (leiðarflugsgjöld) frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 126. lþ.

[15:24]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er ástæða til þess að vekja athygli á því vegna síðustu orða hv. þm. að hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson gerði grein fyrir því hvers vegna hann sat hjá í flugráði við afgreiðslu málsins. Það getur fólk lesið í þingtíðindum. Ég vil vekja athygli á þessu vegna þess að það var verið að reyna að gera það tortryggilegt og láta líta út sem svo að hann væri í einhverri andstöðu við ráðherra í þessu máli sem ekki er.