Endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála

Föstudaginn 03. nóvember 2000, kl. 14:46:28 (1353)

2000-11-03 14:46:28# 126. lþ. 20.13 fundur 13. mál: #A endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála# þál., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 126. lþ.

[14:46]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. talaði um bruna sem hefðu orðið. Hann fullyrti að rekja hefði mátt þá bruna til einhvers konar vanbúnaðar á rafmagni. Ég bið hv. þm. að nefna mér þau dæmi.