Málefni innflytjenda

Miðvikudaginn 08. nóvember 2000, kl. 14:37:23 (1447)

2000-11-08 14:37:23# 126. lþ. 21.6 fundur 210. mál: #A málefni innflytjenda# (fsp. til félmrh.) fsp. (til munnl.) frá félmrh., ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 126. lþ.

[14:37]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa talað hér á undan um mikilvægi þessa málaflokks og um leið geta þess og minna á að hæstv. dómsmrh. boðaði nýja heildarlöggjöf um málefni útlendinga sem koma til með að leysa lögin frá 1965 af hólmi og er líklegt að það frv. verði flutt á hinu háa Alþingi innan tíðar.

Ég ítreka að það er óskandi að þingheimur nái sátt um jafnmikilvæg málefni og málefni útlendinga eru.