Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. ráðherra hefur líka reynt fleiri leiðir í þessum efnum, það er að fá breytingar á jarðræktarlögunum. Ég veit ekki betur en það erindi hafi verið sent bændasamtökunum á síðasta búnaðarþingi. Það eru því til fleiri leiðir en engin þeirra hefur náð fram að ganga og ætli það séu ekki komin ein þrjú, fjögur ár sem þetta hefur staðið þannig.
Í lokaandsvari mínu get ég ekki, herra forseti, gert annað en að brýna hæstv. félmrh. að láta nást einhvern árangur en ekki bara orð því hér er mikið óréttlæti á ferðinni gagnvart sveitabýlunum. Það eru eðlilega sjálfsagðar kröfur um að drykkjarvatn og neysluvatn hvar sem er, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli, á sveitabæjum sem standa í mikilli matvælaframleiðslu og taka á móti fólki og hvaðeina að neysluvatn þar sé af þeim gæðum sem til er ætlast.
Herra forseti. Ég ítreka við hæstv. félmrh. að hann láti ekki sitja við orðin tóm um það að skoða heldur að það komist í verk með einhverjum þeim hætti sem hann finnur til að því ljúki.