Stéttarfélög og vinnudeilur

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 17:29:26 (1642)

2000-11-13 17:29:26# 126. lþ. 23.4 fundur 201. mál: #A stéttarfélög og vinnudeilur# (sektarákvarðanir Félagsdóms) frv., félmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[17:29]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Þetta frv. er endurflutt en það náði ekki fram að ganga á síðasta þingi. Það tekur á tveimur atriðum. Í fyrsta lagi er það leiðrétting í texta, þ.e. í stað orðanna ,,Vinnuveitendasamband Íslands`` koma ,,Samtök atvinnulífsins`` og í öðru lagi, og það er nú meginmál þessa frv., að í 1. mgr. 65. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur kemur fram að Félagsdómur geti dæmt aðila til að greiða sektir. Þetta er síðan áréttað í 70. gr. þar sem segir að brot á lögunum varði sektum samkvæmt 67. gr. og séu dómar Félagsdóms endanlegir og verði ekki áfrýjað.

[17:30]

Pétursson) :

Hinn 7. september 1999 tók Mannréttindadómstóll Evrópu þá ákvörðun að kærumál Siglfirðings ehf. gegn íslenska ríkinu væri tækt til efnismeðferðar fyrir dómstólnum. Mannréttindadómstóllinn lagði jafnframt til að aðilar leituðu sátta í málinu. Kæruefnið í máli þessu laut að því að samkvæmt íslenskum lögum er ekki unnt að áfrýja dómi Félagsdóms frá 10. júní 1996, þar sem kærandi í málinu var dæmdur til að greiða 500 þús. kr. sekt til ríkissjóðs á grundvelli 65. og 70. gr. laga nr. 80/1938. Í ljósi þessa óskaði dómsmrn. eftir áliti réttarfarsnefndar og refsiréttarnefndar um hvort nauðsynlegt væri að gera breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur til samræmis við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Í niðurstöðum beggja nefndanna kemur fram að þær telja vafasamt að núverandi skipan, þ.e. að Félagsdómur ákvarði sektir sem lúta ekki meðferð refsimála og ekki er unnt að áfrýja, standist ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og lögðu þær til breytingar á ákvæðum laganna.

Eins og fyrr greinir náði frv. þessa efnis ekki fram á 125. löggjafarþingi. Þann 30. maí 2000 samþykkti Mannréttindadómstóll Evrópu að fella niður mál Siglfirðings ehf. fyrir dómstólnum á grundvelli sáttar aðila í málinu. Í sáttinni er m.a. vísað til að frv. til breytinga á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, sem feli í sér að sektarákvæði Félagsdóms verði kærð til Hæstaréttar, hafi verið lagt fram á Alþingi vorið 2000 og verði lagt fram að nýju að hausti. Er því ljóst að frv. þetta var ein þeirra forsendna sem Mannréttindadómstóllinn byggði á er hann samþykkti framangreinda sátt Siglfirðings ehf. gegn íslenska ríkinu.

Ég vona að frv. fái meðhöndlun í hv. félmn. og því verði vísað þangað að lokinni þessari umræðu.