Veiðieftirlitsgjald

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 19:57:13 (1684)

2000-11-13 19:57:13# 126. lþ. 23.10 fundur 216. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (fjárhæðir) frv., MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[19:57]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Það vekur athygli að kostnaðurinn vegna veru eftirlitsmanna um borð í veiðiskipum er hærri ef veiðar eru stundaðar utan lögsögu Íslands en innan lögsögunnar og það er einungis þess vegna sem ég velti fyrir mér út frá hvaða forsendum þetta er reiknað.