Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 14. nóvember 2000, kl. 14:48:08 (1695)

2000-11-14 14:48:08# 126. lþ. 24.7 fundur 110#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 126. lþ.

[14:48]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svarið. Það er ánægjulegt að þetta mál er í fullum gangi. Ég lít svo á að þarna sé um að ræða mikilvægt mál og er þess fullviss að utanrmn. mun taka á þessu máli af festu og reyna að gera það sem hún getur til þess að málið nái afgreiðslu á þinginu.