Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég fagna þessum liðsauka og tek undir að lakara er að þurfa að byggja á svona gamalli skoðanakönnun, sem sagt síðustu ítarlegu og vönduðu könnuninni sem að þessu leyti hefur farið fram frá 9. áratugnum.
Hitt er svo annað mál, a.m.k. er það svo í tilviki ræðumanns, að hrun Sovétkommúnismans og upplausn Varsjárbandalagsins breytti ekki nokkru um andstöðu mína við hernaðarbrölt og veru erlends hers í landinu. Ef eitthvað er var ég enn harðari í þeirri andstöðu að við ættum líka að leggja niður NATO og losna við erlendan her sem lið í þeirri friðvænlegu þróun í heiminum sem var tvímælalaust mjög stórkostlegt tækifæri til að hrinda af stað en menn hafa m.a. klúðrað með því að halda í NATO.
Varðandi það hvernig almenningur metur hlutina núna, þá væri náttúrlega best að hann svaraði því sjálfur í viðamikilli og vandaðri könnun um þessa hluti. En ég er alls ekki viss um að þau viðhorf hafi endilega þróast einhliða í átt til meiri jákvæðni í garð Atlantshafsbandalagsins. Það var að vísu mikið púður sett í að reyna að selja okkur þá hugmynd að NATO væri orðið gjörbreytt. Þetta væri orðið friðarbandalag, þetta væri orðið vinalegur kaffiklúbbur þar sem menn sætu og ræddu vandamál heimsins og hvernig þau áttu að leysast. Svo hrundi sú heimsmynd. Hún hrundi þegar NATO fór í þær árásaraðgerðir, mislukkaðar og ólöglegar að alþjóðalögum, sem raun ber vitni með dapurlegum stuðningi íslenskra stjórnvalda. Ástandið er ekki þannig að það mæli beinlínis með slíkum aðgerðum í dag eða hefur hv. þm. kynnt sér t.d. hvernig mannréttindamálum er fyrir komið núna, hvernig lífið er í flóttamannabúðunum í Serbíu o.s.frv.? Ég er ekki viss um að þegar upp er staðið hafi þessu fyrirbæri tekist þrátt fyrir ofurveldi fjölmiðla og miklar lygar sem til þess er beitt að reyna að fegra framgöngu þess og ímynd eins og nú hefur rækilega verið afhjúpað m.a. þegar raunveruleikinn hefur smátt og smátt verið að birtast okkur á Balkanskaganum og víðar, hafi almenningur í stórum stíl skipt um skoðun á slíku hernaðarbrölti og þessu hernaðarbandalagi.