Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég tek undir það með hæstv. forseta að vissulega er hægt að ræða margt um húsnæðiskerfið og ég gerði grein fyrir skýrslu Ríkisendurskoðunar til Samfylkingarinnar og hvað kom út úr henni og ætla ég ekki að ræða frekar um húsnæðiskerfið. En alveg er það dæmalaust eins og kom fram í máli þess forseta sem stýrir fundinum að nú gerðist sá einstæði atburður og við þessa umræðu að forseti gæfi forseta orðið, að það skuli vera aðalforseti Alþingis sem velur það þegar maður reynir að koma með faglega umræðu að fara í ræðustól og svara með skætingi og útúrsnúningi. Mér finnst það dapurt.
Hæstv. forseti nefndi sérstaklega að Ríkisendurskoðun væri falið að skila til Alþingis heildarskýrslu og má alveg ræða það hvað heildarskýrsla er, hvort það er þessi. Ég var ekki einu sinni að setja út á skýrsluna. Ég nefndi það að eins og hún er sett fram, er hún út af fyrir sig vönduð um það efni sem hún fjallar og með hvaða hætti miðað við úrdrætti. Ég er að fara yfir vanda okkar með það hvernig við ætlum að vinna með það tæki sem Ríkisendurskoðun er. Mér fannst ég gera það vel. Mér fannst ég vera að leggja áherslu á að Alþingi geti gert betur. Ég dró fram efh.- og viðskn. sem hefur unnið með skýrslu um tollstjóraembættið og ég greindi frá því að ég mundi biðja þingmenn mína í félmn. að óska eftir að skýrslan yrði tekin fyrir. Þingmenn vita ekkert um þá skýrslu sem Ríkisendurskoðun vann fyrir Samfylkinguna. Hún var ekki send til þingmanna. Það er fullt af skýrslum sem eru ekki sendar til þingmanna. Ég er að leita að því hvernig við getum gert betur. Fylgirit, skrá, sérstök umræða, svona stórar bækur eins og frá umboðsmanni Alþingis og ég frábið mér að hér sé komið í skæting í tilsvari frá forseta Alþingis.