Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er aðallega forvitni og fróðleiksfýsn sem knýr mig til að koma hér í pontu. Það er alltaf mjög fróðlegt að hlýða á þennan einn helsta talsmann Sjálfstfl. á sviði almannatrygginga og fjármagnsmarkaða opna sig eins og hann gerði núna. Í máli hans kom fram að hann telur breytingarnar sem gerðar voru á tekjuskattslögunum 1996 allar hafa verið til góðs, segir að þetta hafi auðveldað sölu á fjölskyldufyrirtækjum og fyrirtækjum almennt. Við umræðuna í gær vísaði hann í söluna á Hagkaupum sem dæmi.
Mig langar til að beina þeirri spurningu til hv. þm. hvort hann sjái enga galla á fjármálaumhverfi Íslendinga nú um stundir? Hefur hann t.d. engar áhyggjur af þeirri einokun sem er hér að skapast á ýmsum sviðum, t.d. á sviði matvörumarkaðar þar sem smásöludreifing er komin 60--70% í hendurnar á einum aðila? Ég spyr í ljósi þessara hástemmdu yfirlýsinga sem hv. þm. hefur gefið, hvort hann virkilega sjái engin hættuteikn eða enga galla á því kerfi sem menn hafa verið að smíða á liðnum árum?