Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það sem ég var að reyna að segja var að málið er komið í hendur Alþingis. Það er Alþingi sem ákveður hvað um málið verður, að fengnum umsögnum þeirra sem málið varðar mest, sveitarfélaganna, Þorskahjálpar og Öryrkjabandalagsins.