Stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 23:44:36 (2111)

2000-11-21 23:44:36# 126. lþ. 28.13 fundur 215. mál: #A stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum# (gildistími) frv., JÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[23:44]

Jóhann Ársælsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Það síðasta sem hæstv. ráðherra sagði um þetta mál sem ég man eftir var eitthvað á þá leið að menn mundu sjá þetta frv. fyrir áramót. Nú frétti ég að það muni ekki verða lagt fram fyrir áramót, menn séu farnir að tala um dagsetningu á næsta ári þannig að ég tel að málið sé nú þegar farið að dragast. Í ljósi þess hafði ég yfir þessi orð hér áðan. En það er gott ef menn halda í vonina. Í hana eiga menn auðvitað að halda sem allra lengst og það gerir hæstv. ráðherra.