Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka svörin. Þau voru skýr. Ég deili einfaldlega áhyggjum mínum með formanni fjárln. um að þeir miklu fjármunir sem við höfum varið til þessa skili okkur einhverju. Vonandi kemur hróður Íslands til með að vaxa og vonandi verður saga Íslands þekktari eftir en áður og gæti þá aflað okkur tekna, m.a. í ferðamennsku.
Ég dró þetta saman í ræðu minni eingöngu til þess að vekja athygli á því að samkvæmt þessum tölum erum við á öðrum milljarðinum í þessum hátíðahöldum og sýningum og mikið þarf að koma til að það skil sér allt.