Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Ég sagði, herra forseti, að viðfangsefnið væri að verja kaupmátt þjóðarinnar. Ég held því fram að það verði viðfangsefni okkar á næstu missirum. Ég hef líka haldið því fram að besta og öruggasta leiðin til að treysta íslenskt efnahagslíf væri að treysta starfsumhverfi atvinnufyrirtækjanna. Ég er sannfærður um að ef við lækkum skatta á atvinnufyrirtæki verða þau betur í stakk búin til að standa undir þeim lífskjörum sem Íslendingar fara fram á. Ég er líka sannfærður um, þó mörgum finnist það skrýtið, að með því að lækka skattana á atvinnurekstrinum getum við um leið hækkað tekjur ríkisins. Það skiptir máli að menn borgi skatta sína á Íslandi. Við verðum að kljást við það eins og aðrar smáþjóðir í heiminum. Það skiptir máli að skattarnir séu borgaðir hér. Það mun verða affarasælast fyrir fyrirtækin og launþegana. Ég hef aldrei ráðist á einhverja sérstaka láglaunahópa. Hv. þm. hefur dreymt það.