Árni Steinar Jóhannsson:
Virðulegi forseti. Það er bráðnauðsynlegt að bæta fjarskipti og auka flutningsgetu grunnnetsins hér á landi. Það er tilgangslaust að tala um atvinnuuppbyggingu úti á landi, tala um fjarnám o.s.frv. ef stoðkerfi landsins er ekki í lagi. Þess vegna leggjum við til að gert verði myndarlegt átak í þessum efnum með framlagi upp á 300 millj. á næsta fjárhagsári. Ég segi já.