Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Í fjárlagafrv. er fjármagn til að taka í rekstur nokkur ný sambýli á árinu. Ég vænti þess að það verði notað til að taka þau í notkun ef tekst að byggja á árinu, ef framkvæmdahraði verður slíkur að þau komist í gagnið verði ekki látið stranda á því.
Ég held að óþarfi sé að væna Öryrkjabandalagið um nokkra sýndarmennsku. Það er eindreginn vilji Öryrkjabandalagsins sem ég hef orðið glögglega var við að standa að þessu máli af myndarskap.