Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Vinstri hreyfingin -- grænt framboð styður þessa tillögu en hún byggir á því að heimildum sveitarfélaga til útsvarshækkunar verði mætt með samsvarandi tekjuskattslækkun, ekki að hluta til eins og ríkisstjórnin gerir tillögu um heldur að fullu. Með því móti næðust þau meginmarkmið að færa tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga án þess að skattbyrði á launafólk væru aukin. Þessi afstaða er í fullu samræmi við afstöðu sveitarfélaganna. Hún er í samræmi við kröfur ASÍ. Hún samræmist sjónarmiðum BSRB. Hún nýtur stuðnings Öryrkjabandalags Íslands og Félags eldri borgara. Þetta er réttlætismál sem á hljómgrunn í þjóðfélaginu. Nú reynir á hvort þessi almannavilji endurspeglast hér í sölum Alþingis. Ég segi já.