Tekjuskattur og eignarskattur

Miðvikudaginn 06. desember 2000, kl. 14:15:35 (2821)

2000-12-06 14:15:35# 126. lþ. 41.1 fundur 196. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (skatthlutfall) frv. 150/2000, EKG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 126. lþ.

[14:15]

Einar K. Guðfinnsson:

Virðulegi forseti. Ég tek undir með formanni Samfylkingarinnar um að hlusta beri á sjónarmið helstu stofnana landsins á sviði efnahagsmála eins og Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að yrði þessi tillaga samþykkt mundi það raska efnahagsjafnvæginu og auka viðskiptahallann. Því segi ég nei.