Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þessa fyrirspurn frá hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Fyrirspurnin hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Hefur ráðherra tilkynnt skrifstofu Ramsar-samningsins um úrskurð sinn er lýtur að kísilgúrvinnslu úr Mývatni, og ef svo er, hver hafa viðbrögð skrifstofunnar verið?``
Því er til að svara að Ramsar-samningurinn gerir ráð fyrir að aðildarríki samningsins tilkynni um ákvarðanir og aðgerðir sem kunna að hafa áhrif á vistfræðilega eiginleika Ramsar-svæða í viðkomandi landi. Í umhvrn. er nú verið að vinna að bréfi til skrifstofu samningsins þar sem gerð verður grein fyrir nýlega felldum úrskurði um mat á umhverfisáhrifum vegna kísilgúrvinnslu úr Syðriflóa Mývatns.
Skrifstofu samningsins var í sumar með bréfi, dagsettu 3. ágúst, gerð grein fyrir því að Skipulagsstofnun hefði kveðið upp úrskurð í málinu sem gerði ráð fyrir námugreftri í Syðriflóa og að sá úrskurður væri kæranlegur til ráðuneytisins fram til 16. ágúst. Skrifstofu samningsins er því kunnugt um málið.