Fyrirspyrjandi (Jón Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þau svör sem hann hefur gefið að svo stöddu. En ég innti hann einnig eftir því hvort einhver ágreiningur væri milli fjmrn. og Sambands íslenskra sveitarfélaga um mat á afskriftum. Við vitum að við sölu á fasteignum nú ganga kaup með húsbréfum og þau bera afföll og það kemur þá inn í það verðfall sem er á viðkomandi húseignum og er samkomulag um hvernig það skuli metið og/eða önnur atriði varðandi það. Reyndar kveður reglugerðin um þetta mál ekki beint á um samkomulag heldur er tilgreint hvernig skuli greiða þetta, en í sjálfu sér er eðlilegt að um þetta sé samkomulag.
Ég hefði líka viljað að hæstv. ráðherra gæti upplýst hver hann teldi að væri líkleg þörf á næsta ári og enn fremur um þær 50 millj. sem hæstv. ráðherra upplýsti að hefðu verið greiddar á þessu ári. Er það samkvæmt óskum og beiðnum Sambands ísl. sveitarfélaga eða því sem varasjóðurinn hefur gert og talið sig þurfa og hefur sú þörf þar með verið uppfyllt sem þarna var fyrir hendi?
Ég legg áherslu á, herra forseti, að hlutverk varasjóðsins er afar þýðingarmikið og mun vafalaust vaxa enn meir á næstu árum varðandi þessar íbúðir og er því ástæða til að skýrar reglur gildi.