Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég lít svo að vinnumál fatlaðra séu mjög mikilvæg málefni. Verndaðir vinnustaðir eru líka mjög mikilvægir vinnustaðir þar sem starfsorka nýtist, starfsgeta hinna fötluðu, eitthvað er framleitt og verðmætasköpun myndast. Þeir eru ekki síður félagslegt úrræði til þess að gera hinn fatlaða þátttakanda í samfélaginu, rjúfa einangrun og veita lífsfyllingu.
Ekki er búið að gera neina heildarkjarasamninga vegna fatlaðra. Búið er að vinna töluverða vinnu og skýrslur liggja fyrir sem eru til athugunar í ráðuneytinu og nokkrir þjónustusamningar hafa verið gerðir við vinnustaði fatlaðra. Ég man t.d. eftir nýlega gerðum samningi við Múlalund, en heildarsamninga er ekki búið að gera.