Gísli S. Einarsson:
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið. Ég tek undir orð síðasta hv. ræðumanns. Það væri vissulega ástæða til þess að ræða málefni aldraðra í löngu máli nú þegar styttast fer í jólin og styttast í að biðraðir myndist við ýmsar hjálparstofnanir. Það er auðvitað skelfilegt að hluti aldraðra skuli þurfa að fara í þær biðraðir til að fá aðstoð til að komast af um jólin.
Ég ætla ekki að leggjast gegn frv. sem hér er til umræðu. Það upplýst í frv. að 560 manns bíði eftir vistrými og 230 aldraðir hafi brýna þörf fyrir hjúkrunarrými. Þetta vitum við að er rétt og þetta er bara í Reykjavík. Til þess að mæta þessu er boðuð skattahækkun upp á 513 kr. á hvern einasta skattgreiðanda yfir 16 ára aldri. Á sama tíma og ætlað er að 34 þús. millj. verði í tekjuafgang hjá ríkissjóði á næsta ári, 34 milljarðar í tekjuafgang, væri þá ekki rétt að taka örlítið á þeim vandamálum sem við eigum við að etja með t.d. 4% af þeirri upphæð? Væru 4% af þessum 34 milljörðum nýtt mundi það duga til að lagfæra kjör allra sem eru neðan við framfærslumörkin, um 12 þús. einstaklinga. Talið er að um 12 þús. manns séu í þeim hópi.
Í bréfi sem öllum hv. þm. barst í gær frá Félagi eldri borgara er greint frá því að 7.400 eldri borgarar hafi ekki nóg til framfærslu. Ég hef ekki verið í aðstöðu til að fara í gegnum þessar tölur. Ég verð þó að segja eins og er, virðulegi forseti, að ég enga ástæðu til þess að rengja neitt af því sem hér er sett fram miðað við reynslu mína af upplýsingum frá þessum aðilum undanfarin ár. Það þarf ekki annað en líta á að mánaðargreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega eru 17.715 kr. á mann. Hjónalífeyrir er 15.944 kr. Full tekjutrygging ellilífeyrisþega er 30.461 kr. Ég tala nú ekki um ef eldri borgarar hafa álpast til að kaupa sér litla bifreið, þá kostar 20.833 kr. að reka eina litla bifreið af 58 þús. kr. Það eru þó sannarlega ekki lægstu tekjur sem þessir einstaklingar hafa til framfærslu.
Ég kom einnig upp, virðulegi forseti, til að taka undir þau sjónarmið sem hér eru sett fram, að stytta þurfi biðlistana. Það er kannski ekki óeðlilegt að hækka framlagið miðað við verðlag en hér er svo sannarlega um skattahækkun að ræða sem gerir ekki nóg til að bæta úr brýnni þörf. Það er kannski verst. Það knúði mig kannski helst til að benda á að ekki þarf nema 4% af tekjuafgangi ríkissjóðs til að gerbreyta stöðu þeirra 12.000 sem minnst hafa til framfærslu. Menn telja að á bilinu 8.000--12.000 lifi við þau kjör að hafa ekki næga framfærslu. Lágmarksframfærsla er miðuð við 68--70 þús. kr. Ég veit að ekki einn einasti maður, hvorki hér í þessum sal á hinu háa Alþingi né nokkur sem á mig hlustar, hvaða nafn sem hann ber, kemst bærilega af með 68 þús. kr. á mánuði, þó að hann eigi hvorki bíl, sjónvarp né síma, sem er þó talið eitt af nauðsynlegum heimilistækjum nútímans.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Ég tek undir þær spurningar sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir bar fram. Ég hafði hugsað mér að spyrja sömu spurninga að hluta. Ég ætla ekki að bæta við þann lista. Ég veit að við fáum svör frá hæstv. heilbrrh. þar að lútandi. Þetta eru málefni sem við eigum að láta okkur miklu varða og taka á. Við verðum að hafa í huga að það þarf ekki nema 4% af áætluðum tekjuafgangi ríkissjóðs til að bæta kjör allra þeirra sem eru undir framfærslumörkum.