Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég sagði einmitt að ætlunin væri að nýta þessa starfskrafta til fulls áfram. Það er full þörf fyrir þetta góða starfsfólk og þó að skipulaginu sé breytt eru verkefnin áfram fyrir hendi.
Ég lét þess getið að markmiðið með þessum breytingum væri að nýta betur mannafla og fjármagn sem rennur í þennan málaflokk. Við sjáum fyrir okkur að hægt verði að fá meira út úr því fjármagni með þessum breytingum og efla þar með vissa mikilvæga og viðkvæma þætti í þessari starfsemi, t.d. fíkniefnaeftirlit.
Varðandi hinn stjórnsýslulega þátt þessa máls þá er verið að taka þarna embætti sem hefur eftirlitshlutverki að gegna gagnvart öðrum tollstjórum í landinu, þetta er yfirtollstjórinn ef svo mætti segja, ríkistollstjórinn, og flytja eftirlitsþáttinn yfir í fjmrn. eins og var hér áður fyrr. Tollstjórinn í Reykjavík verður þar með ekki eftirlitsaðili með öðrum tollstjórum. Embætti hans er ekki sett skör hærra en annarra tollstjóra og heldur ekki í þá aðstöðu að þurfa að hafa eftirlit með sjálfu sér. Slíkt gengur ekki í nútímastjórnsýslu og það verkefni verður hjá ráðuneytinu.
Ætlunin er aftur á móti að tollstjórinn í Reykjavík, sem er langsamlega öflugasta embættið á þessu sviði, fái ákveðið samræmingarhlutverk gagnvart hinum tollstjórunum sem eru auðvitað á sama stjórnsýslustigi. Hann gæti og veitt þessum embættum öfluga þjónustu og stuðning í vissum verkefnum. Við vitum að þar getur verið um að ræða tímabundnar aðgerðir eða verkefni sem lítil embætti úti á landi geta stundum átt í erfiðleikum með að sinna án aðstoðar frá hinum stærri embættum. Það mun þá falla í hlut tollstjórans í Reykjavík að sinna því.