Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ein stærsta breytingin sem gerð er á fjárlagafrv. milli 2. og 3. umr. er að auka verulega tekjur vegna áforma ríkisstjórnarinnar um eignasölu. Sennilega er þetta að stærstum hluta til komið vegna áforma ríkisins um sölu á Landssímanum. Þar er um að ræða stærsta einkavæðingarverkefni sem ráðist hefur verið í og hæstv. forsrh. lýsti því í sjónvarpi í gær að um væri að ræða sölu upp á hugsanlega 60--100 milljarða kr. Það eru ekki boðleg vinnubrögð, herra forseti, að hér skuli vera tekin fyrir umræða þar sem á að ákveða tekjuaukningu vegna þessarar sölu án þess að þingmönnum sé gerð grein fyrir forsendum hennar og að fyrir liggi skýrsla, m.a. um markaðsleg áhrif þessarar sölu, áhrif á vexti, áhrif á þensluna í þjóðfélaginu, áhrif á landsbyggðina o.s.frv.
Herra forseti. Við hljótum að gera kröfu til þess að þessari umræðu ljúki ekki nema að stjórnarliðar geri grein fyrir, og ég beini því hér með til hæstv. forsrh., forsendum þessarar sölu og ýmsu sem henni tengist, hvort setja eigi skorður við eignarhluta, eignarhaldi o.s.frv. og ekki síst markaðslegu áhrifunum. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Er hann reiðubúinn til þess að beita sér fyrir því að fjárln. fái drög einkavæðingarnefndar til skoðunar áður en þessari umræðu lýkur? Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir framhald þessarar umræðu, þannig að hún geti gengið eðlilega fyrir sig, að hæstv. forsrh. svari því hvort hann muni beita sér fyrir því að við fáum drög að þessari skýrslu, þ.e. um helstu áhrifin. Það er ekki beðið um meira. Ef þessi sala gengur fram, hvaða áhrif mun það hafa?