Málefni aldraðra

Föstudaginn 08. desember 2000, kl. 10:58:44 (3014)

2000-12-08 10:58:44# 126. lþ. 44.8 fundur 317. mál: #A málefni aldraðra# (Framkvæmdasjóður aldraðra) frv. 172/2000, PHB (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 126. lþ.

[10:58]

Pétur H. Blöndal (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Umrætt frv. gengur út á það eitt að hækka gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra sem er nefskattur, um 513 kr. Þetta er alfarið skattamál og ég legg því til að málinu verði vísað til hv. efh.- og viðskn.